Aðstaða
Vinnslan fer fram í húsnæði fyrirtækisins í Hafnarfirði. Öll aðstaðan er til fyrirmyndar sem tryggir bestu meðhöndlun hráefnisins allt frá því að það er tekið í hús og þar til afurðin er fullunnin í neytendaumbúðir.

Hreinlæti
Hráefnið sem Reykhúsið Reykhólar kaupir, er með því besta sem gerist. Það er ferskt og gæðin eins og best verður á kosið. Því er mikilvægt að ítrasta hreinlætis sé gætt í vinnsluferlinu. Starfsfólk er meðvitað um nauðsyn þess á hverju stigi framleiðslunnar. |